Viðskipti innlent

Síminn og Anza sameinast

Húsnæði Símans.
Húsnæði Símans. Mynd/Vilhelm

Stjórnir Símans og Anza hafa samþykkt að sameina fyrirtækin. Stjórnendur fyrirtækjanna segja ástæðuna vera tækifæri til að veita viðskiptavinum á fyrirtækjamarkaði enn betri þjónustu út frá sterkri og sameinaðri heild auk þess sem góð samlegðaráhrif geti falist í samrunanum.

Í tilkynningu sem birtist á vefsíðu Anza í dag segir að með sameiningu krafta fyrirtækjanna megi ná fram auknum styrk á sviði þjónustu, ráðgjafar og sölu. Með breytingunni er einnig horft til þess að þróun lausna verði enn hraðari út á markaðinn og skerpt verði á þróun sértækra lausna fyrir mismunandi atvinnugreinar.

Innan fyrirtækjasviðs Símans verða myndaðar tvær nýjar starfseiningar, þjónustueining og ráðgjafaeining. Þjónustueiningin mun byggja að stórum hluta á núverandi rekstrarsviði Anza en þangað færist núverandi þjónustustarfsemi Símans á fyrirtækjamarkaði, svo sem þjónustunúmerið 800 4000, bilanaþjónusta, þjónustuborð fyrirtækjasviðs og víðnetsþjónusta af tæknisviði Símans. Undir ráðgjafaeininguna fer núverandi lausnaráðgjöf Símans ásamt sérfræðingum frá Anza.

Starfsfólki Símans og Anza var tilkynnt um samrunann í dag og mun starfsfólk Anza formlega hefja störf hjá Símanum frá og með 1. júlí næstkomandi.

Þá mun Hreinn Jakobsson, fráfarandi framkvæmdastjóri Anza, taka að sér að setja á fót skrifstofu í Kaupmannahöfn með það að markmiði að byggja upp starfsemi Skipta hf, móðurfélag Símans, í Skandinavíu. Helstu verkefni verða að fylgja á eftir málum varðandi Sirius IT í Danmörku, Noregi og Svíþjóð, og kanna ný fjárfestingatækifæri félagsins á sviði upplýsingatækni, að því er segir á vefsíðu Anza.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×