Viðskipti innlent

Jón Ásgeir hættur sem forstjóri Baugs

Jón Ásgeir Jóhannesson, fráfarandi forstjóri Baugs Group.
Jón Ásgeir Jóhannesson, fráfarandi forstjóri Baugs Group.

Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, tilkynnti á aðalfundi Baugs Group í dag að hann hafi látið af störfum sem forstjóri fyrirtækisins. Við starfi hans tekur Gunnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri fjárfestinga Baugs í Bretlandi. Jón mun í kjölfarið taka við sem starfandi stjórnarformaður Baugs Group. Umtalsverðar skipulagsbreytingar á stjórn Baugs voru kynntar á aðalfundi félagsins í dag.

Þá verður Stefán H. Hilmarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, staðgengill forstjóra. Skarphéðinn Berg Steinarsson sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra Property & Investments sviðs Baugs tekur við forstjórastarfi hjá Stoðir Group, sem er nýstofnað félag sem tekur yfir rekstur Stoða hf. og fleiri fasteignafélaga.

Hreinn Loftsson, sem hingað til hefur gengt starfi stjórnarformanns, mun sitja áfram í stjórn félagsins og gegna ráðgjafastörfum fyrir það.

Breytingar á stjórn Baugs
Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs.

Í tilkynningu frá Baugi segir að breytingarnar séu gerðar með það fyrir augum að gera stjórnun félagsins enn skilvirkari en áður í fjölþættri sókn þess á alþjóðavettvangi.

Haft er eftir Jóni Ásgeiri, sem sömuleiðis tók við stjórnarformennsku í FL Group af Skarphéðni Berg í dag, að fyrirtækið hafi vaxið mjög hratt á undanförnum árum og sé Baugur Group nú það fjárfestingarfélag á sviði smásölu og fasteigna sem hraðast vex í heiminum, Hafi umfangið kallað á breytt skipulag til að vöxtur og velgengni félagsins geti haldið áfram.

„Við höfum sett okkur þau markmið að verða stærsta fjárfestingarfyrirtæki í heiminum í fjárfestingum tengdum verslunarrekstri innan 5 ára. Að ná slíku markmiði krefst þess að Baugur sé í framlínu á þróun rekstrarumhverfis verslunar auk þess að vera leiðandi þátttakandi í þeirri gríðarlegu samþættingu verslunar sem mun eiga sér stað á komandi árum. Í starfi mínu sem starfandi stjórnarformaður mun mér gefast tækifæri til að þróa þessa sýn, horfa lengra fram á veginn og byggja upp umhverfi sem gerir Baugi kleift að ná settum markmiðum á þessu sviði," segir Jón Ásgeir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×