Viðskipti innlent

Føroya Banki opnar útibú í Danmörku

Janus Pedersen, forstjóri Føroya  Banka, sem ætlar að opna útibú í Danmörku á næsta ári.
Janus Pedersen, forstjóri Føroya Banka, sem ætlar að opna útibú í Danmörku á næsta ári.

Hinn færeyski Føroya Banki ætlar að setja á laggirnar útibú í Danmörku á fyrsta fjórðungi næsta árs. Hlutabréf í bankanum eru skráð í Kauphöllina hér og í Kaupmannahöfn í Danmörku. Føroya Banki segir aðstæður á dönskum bankamarkaði ríma vel við stefnu bankans.

Í tilkynningu Føroya Banka í dag kemur fram að Carlo Chow verði bankastjóri en Kim Linnemann framkvæmdastjóri en þeir hafa mikla reynslu úr dönsku fjármálalífi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×