Viðskipti erlent

Fyrsta pöntun á 100 dollara tölvum

Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar
MYND/AFP

Urugvæ er fyrsta landið til að gera opinbera pöntun á hinum svokölluðu 100 dollara tölvum. Ríkisstjórnin keypti 100 þúsund tölvur fyrir skólabörn á aldrinum sex til 12 ára. Til stendur að kaupa 300 þúsund tölvur í viðbót handa hverju skólabarni í landinu fyrir árið 2009.

Pöntunin er mikill fengur fyrir eina „tölvu á barn"- samtökin sem standa á bakvið framleiðslu tölvanna. Samtökin höfðu viðurkennt að tregða væri á pöntunum.

Nicholas Negroponte stofnandi samtakanna sagði nýlega í viðtali við the New York Times að hann hefði vanmetið muninn á því innsigla kaup með handabandi og að peningar kæmu inn fyrir pöntunum. Hann bætti þó við að hann væri mjög ánægður með fyrstu pöntunina.

Hönnuð fyrir notkun í þróunarlöndum
MYND/AP

Tölvan er kölluð OX ferðatölvan og var þróuð sérstaklega til notkunar fyrir börn í þróunarlöndum.

Hún er endingargóð, vatnsheld og getur gengið fyrir sólarorku, fótpumpu eða hleðslutæki sem veitir orku með því að togað er í streng á því. Hægt er að lesa á skjáinn í sólskyni svo auðvelt er að nota tölvuna úti.

Upphaflegar áætlanir um að selja tölvurnar á 100 dollara stykkið, eða rúmar sex þúsund krónur, hafa breyst. Verðið hefur hækkað í 188 dollara eða tæpar 11.400 krónur.

Þá var ríkisstjórnum boðið að kaupa 250 þúsund tölvur í einu, en nú er ýmsum aðferðum beitt til að selja eða dreifa.

Sem dæmi getur almenningur keypt vél um leið og það kaupir tölvu fyrir barn í þróunarlöndum. Til að byrja með mun „keyptu eina, gefðu eina" prógrammið dreyfa tölvum í Kambódíu, Afghanistan, Rúanda og Haítí.

Almenningur getur einnig gefið 100 tölvur í einu eða fleiri til einhvers lands að eigin vali. Þá kostar hver tölva 299 dollara, eða rúmar 18 þúsund krónur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×