Viðskipti erlent

Forrit gegn auglýsingum sniðnum að nethegðun

Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar

Bandarískir málsvarar einkalífs og neytendasamtök vestanhafs leita nú eftir hönnun forrits eða listar sem leyfir internetnotendum að ráða hvort auglýsendur nái til þeirra. Forritið myndi hamla fyrirtækjum að sníða auglýsingar að nethegðun einstaklinga.

Þeir sem standa á bakvið hugmyndina eru meðal annars Miðstöð fyrir lýðræði og tækni, Rafeindatæknisamtök og Neytendasamtök Ameríku. Samtökin hafa óskað eftir að Alríkisviðskiptanefnd Bandaríkjanna stofni listann sem væri ekki ólíkur lista á vegum símafyrirtækja sem bannar auglýsendum að hringja í símanúmer sem merkt eru inn á hann.

Búist er við að persónugerðar og nethegðunarmiðaðar auglýsingar aukist mikið á komandi árum. Google, Yahoo og Microsoft hafa öll keypt fyrirtæki sem sérhæfa sig í auglýsingum á netinu á síðustu mánuðum.

Með tilkomu listans yrðu auglýsendur sem koma rafrænum merkimiðum fyrir á tölvum neytenda að skrá öll lén netþjóna sem taka þátt í slíkri starfsemi hjá Alríkisviðskiptanefndinni.

„Möguleikinn á að komast hjá því að verða fyrir aðkasti auglýsenda á netinu ætti að verða jafnþekktur- og aðgengilegur og möguleikinn á að komast hjá auglýsingum í síma," sagði Mark Cooper yfirmaður rannsóknar Neytendasamtaka Bandaríkjanna sagði Reuters fréttastofunni.

Listinn myndi banna auglýsendum að safna og nota persónugerðar upplýsingar um heilsu og frjáhagsathafnir. Hann myndi einnig krefjast endurskoðunar á fyrirtækjum sem nota atferlishegðunarupplýsingar til að tryggja að þau fari eftir þeim stöðlum sem nefndin setur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×