Golf

Tiger vann sögulegan sigur með fugli á 72. holu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Tiger fagnar eftir að hafa sett niður fugl á átjándu í gær.
Tiger fagnar eftir að hafa sett niður fugl á átjándu í gær. Nordic Photos / Getty Images

Tiger Woods vann sitt fimmta mót á PGA-mótaröðinni í golfi í röð með því að setja niður 7,5 metra pútt á átjándu og síðustu holu Arnold Palmer-mótsins í gær.

Það má sjá myndband af atvikinu og viðtal við Tiger á heimasíðu PGA-mótaraðarinnar, pgatour.com.

Tiger er enn ósigraður á þessu ári en hann var nokkuð lengi að ná sínu besta fram á Flórída um helgina. Hann var efstur fyrir keppnisdaginn ásamt fjórum öðrum. Tiger lék samtals á tíu höggum undir pari en Bart Bryant kom næstur á níu höggum undir pari.

Vijay Singh, Sean O'Hair og Bubba Watson voru einnig í fyrsta sætinu fyrir lokakeppnisdaginn en náðu ekki að halda í við þá Tiger og Bryant.

Bart Bryant varð fyrsti maðurinn í 21 ár til að spila alla fjóra hringina undir 70 höggum. Hann lék á 68 höggum fyrstu þrjá dagana en á 67 höggum í gær.

Tiger vann sinn 64. sigur á ferlinum og jafnaði þar með árangur Ben Hogan sem er í þriðja sæti yfir sigursælustu kylfinga í sögu PGA-mótaraðarinnar.

Sam Snead vann 82 sigra á ferlinum og Jack Nicklaus 72 talsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×