Viðskipti erlent

Hagtölur frá Kína valda mikilli hækkun á álverði

Heimsmarkaðsverð á áli hefur tekið mikið stökk upp á við frá því í gær og þar til í morgun eða um 80 dollara á tonnið. Það eru nýjar hagtölur frá Kína sem valda þessari hækkun en samkvæmt þeim mædist hagvöxtur landsins á síðasta ársfjórðungi 7,9%.

Á þriðjudag stóð tonnið á álinu á markaðinum í London í 1.570 dollurum miðað við þriggja mánaða framvirka samninga en í morgun var það komið í tæpa 1.650 dollara. Fram að þessum tíma hafði verðið rokkað í kringum 1.550 dollara um töluvert skeið.

Fleiri málmar og hrávörur hafa hækkað í kjölfar þess að hagtölurnar í Kína voru birtar í gærdag. Þannig greinir börsen.dk frá því að verð á kopar hafi hækkað þrjá daga í röð á markaðinum í Shanghai og sé nú það hæsta undanfarin mánuð. Kína er stærsti innflytjandi heimsins á kopar.

Að sögn Gordon Kwan forstöðumanns orkurannsókna hjá Mirae Asset Securtities hefur bílasala í Kína verið meiri en menn áttu von á og að víða í stærstum borgum Kína megi nú sjá auglýsingar þar sem nýir bílar eru auglýstir til sölu með vaxtalausum lánum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×