Viðskipti erlent

Rio Tinto lýkur einni stærstu hlutafjáraukningu sögunnar

Námurisinn Rio Tinto, sem m.a. rekur álverið í Straumsvík, lauk í dag við eina stærstu hlutfjáraukningu sögunnar. Alls voru rúmlega 15 milljarðar dollara, eða tæplega 1.900 milljarða kr., í boði og keyptu núverandi hluthafar félagsins í Bretlandi og Ástralíu nær allt þetta magn.

Í Bretlandi keyptu núverandi hluthafar rétt tæp 97% af því sem þeir áttu rétt á og í Ástralíu var hlutfallið tæp 95% að því er segir í frétt um málið á Reuters. Það sem eftir stendur verður svo selt af þeim bönkum sem sáu um útboðið.

Bankarnir sem hér um ræðir eru m.a. Credit Suisse, JP Morgan, Morgan Stanley, RBS og Deutsche Bank. Þeir samtals 420 milljónir dollara í sinn hlut auk ágóðans af sölu þeirra hluta sem eftir standa.

Rio Tinto fór út í hlutafjáraukninguna eftir að samningur um kaup kínverska álrisans Chinalco á stórum hlut í félaginu náði ekki fram að ganga.

Rio Tinto þarf á framangreindri fjárhæð að halda til að greiða niður skuldir sínar sem nú nema 38 milljörðum dollara. Megnið af þeim skuldum stafa frá yfirtöku Rio Tinto á kanadíska álfélaginu Alcan árið 2007.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×