Viðskipti erlent

Yfir 50 bankar í Bandaríkjunum orðnir gjaldþrota í ár

Tala þeirra banka í Bandaríkjunum sem orðið hafa gjaldþrota í ár nemur nú 52 eftir að sjö bankar lýstu sig gjaldþrota í síðustu viku. Þetta eru meir en helmingi fleiri bankagjaldþrot vestan hafs í ár en á öllu árinu í fyrra.

Hér er um að ræða litla og meðalstóra héraðsbanka í ríkjum Bandaríkjanna. Af þeim sjö sem urðu gjaldþrota í síðustu viku voru sex í Illinois og einn í Texas. Langflest hafa gjaldþrotin hinsvegar orðið í Kaliforníu en það ríki glímir nú við alvarlegan fjárhagsvanda.

Í frétt um málið á CNN Money segir að samkvæmt upplýsingum frá tryggingarsjóði innistæðueigenda í Bandaríkjunum (FDIC) hafa þessi gjaldþrot í ár kostað sjóðinn 12,3 milljarða dollara, eða rúmlega 1.500 milljarða kr. Á öllu árinu í fyrra þurfti FDIC að greiða 17,6 milljarða dollara vegna bankagjaldþrota en sjóðurinn tryggir allar innistæður upp að 250.000 dollurum. Sú upphæð var hækkuð úr 100.000 dollurum í fyrra.

Þessir héraðsbankar hafa orðið illa úti í fjármálakreppunni þar sem fasteignaverð hefur hrapað og atvinnuleysi aukist sem gerir almenning illa í stakk búinn til að standa við afborganir og vexti af lánum sínum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×