Golf

Harrington bjartsýnn á gott gengi á PGA-meistaramótinu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Harrington gefur eiginhandaráritanir eftir æfingu í gær.
Harrington gefur eiginhandaráritanir eftir æfingu í gær. Nordic Photos/AFP

Írinn Padraig Harrington á titil að verja á PGA-meistaramótinu sem hefst á Hazeltine-vellinum í kvöld. Hann er bjartsýnn á góðan árangur þó svo hann sé að vinna í að breyta sveiflunni sinni.

Harrington hefur ekki gengið sem skyldi í ár og ekki komist í gegnum niðurskurðinn á átta mótum. Hann náði þó öðru sætinu í Ohio um daginn er hann tapaði fyrir Tiger á lokadeginum.

Harrington segir að það séu sex mánuðir í að nýja sveiflan verði orðinn fullkomin.

„Ég á samt að geta spilað nógu vel til þess að vinna mótið," sagði hinn 37 ára Íri kokhraustur.

„Það sem þið sáuð frá mér í síðustu viku var hugarfarsbreyting. Hún skilaði þessum fína árangri og vonandi kemur meira núna."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×