Viðskipti erlent

Verðbólga á Bretlandi mælist 1,8%

Frá London
Frá London

Ársverðbólga á Bretlandi mælist nú 1,8 prósent sem er lægsta verðbólga sem mælst hefur í sameinaða konungsríkinu í næstum tvö ár. Orsakirnar eru aðallega lækkandi verð á bensíni og matvöru.

Verðbólgumarkmið ríkisstjórnar Bretlands er 2 prósentustig en tólf mánaða verðbólga mældist 2,2% í maí. Verðbólgan sem nú mælist er sú lægsta síðan í september 2007 og er niðurstaðan í samræmi við spár hagfræðinga.

Verðbólgan hefur lækkað hröðum skrefum á Bretlandi siðan í september síðastliðnum er ársverðbólga mældist 5,2 prósent. Þrátt fyrir að Bretar búi við lága verðbólgu er hún samt hærri en á evrusvæðinu og Bandaríkjunum en þar hefur mælst verðhjöðnun.

Snörp gengislækkun breska pundsins gagnvart evru og bandaríkjadollar hefur hingað til verið rakin til hærri verðbólgu á Bretlandi en á evrusvæðinu og í Bandaríkjunum.

Þrátt fyrir meiri verðbólgu á Bretlandi eru miklar líkur á því að verðlag muni lækka ennfrekar á Bretlandi. Benda hagfræðingar á að pundið eigi eftir að styrkjast gagnvart öðrum gjaldmiðlum og sú styrking komi til með að lækka verð á innfluttum vörum fyrir breska neytendur.

Eru þetta taldar vísbendingar um að efnahagslægðin sé ekki verri á Bretlandi heldur en í öðrum stórum hagkerfum heimsins. Í raun sé staðan mun betri en til að mynda í Japan og Þýskalandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×