Viðskipti erlent

Gríðarlegt atvinnuleysi á Bretlandi og fer vaxandi

Gunnar Örn Jónsson skrifar
Atvinnulausum einstaklingum á breskum vinnumarkaði hefur fjölgað um 220 þúsund frá því í byrjun júní. Heildarfjöldi atvinnulausra er nú rúmlega 2,4 milljónir samkvæmt opinberum tölum þar í landi.

Atvinnuleysi hefur ekki verið svona mikið síðan sumarið 1995 eða í fjórtán ár, um 2.500 manns missa atvinnu sína á hverjum degi. Það er fréttavefurinn Sky News sem greinir frá þessu.

Sérfræðingar segja að þessi tíðindi muni auka þrýstinginn á ríkisstjórnina og hún verði að hefja frekari aðgerðir til að koma hjólum atvinnulífsins í réttan farveg.

Vísir greindi frá því í síðustu viku að Seðlabanki Englands hafi aukið peningamagn í umferð um fimmtíu milljarða punda en nú virðist þörf á enn frekari aðgerðum af hálfu stjórnvalda. Bankinn hefur þegar farið yfir þau mörk sem hann áætlaði en hann hefur sett 175 milljarða punda inn í breska hagkerfið síðan lánsfjárkrísan hófst.

Rannsóknarstofnun í viðskipta- og efnahagsmálum (CEBR) telur að fjöldi atvinnulausra geti hæglega náð fjórum milljónum. Það er meira atvinnuleysi en undir stjórn Margaret Thatcher, í upphafi níunda áratugarins.

Nýútskrifuðum háskólastúdentum fjölgar auk þess með hverju árinu og atvinnuleysi hjá ungu fólki fer ört vaxandi.






Tengdar fréttir

50 milljarðar punda inn í breska hagkerfið

Seðlabanki Englands mun auka peningamagn í umferið um 50 milljarða punda með kaupum á ríkisskuldabréfum og skuldabréfum fyrirtækja. Upphæðin jafngildir rúmlega 10 þúsund milljörðum íslenskra króna. Er þetta gert í þeim tilgangi að hleypa lífi í efnahgagslíf þjóðarinnar. Það er Bloomberg fréttaveitan sem greinir frá þessu í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×