Golf

Tiger Woods í bílstjórasætinu á Opna-Buick mótinu

Ómar Þorgeirsson skrifar
Tiger Woods.
Tiger Woods. Nordic photos/AFP

Tiger Woods hélt uppteknum hætti á Opna-Buick mótinu í golfi í gær og klifraði alla leið upp í efsta sæti þegar hann lék á 65 höggum eða sjö höggum undir pari vallarins.

Woods er því samanlagt á sautján höggum undir pari og er með eins högga forystu á landa sinn Michael Letzig fyrir lokahringinn.

Stjörnukylfingurinn er þó ekki alveg nógu sáttur með spilamennskuna sína til þessa í mótinu þrátt fyrir að vera á toppnum.

„Þessi íþrótt snýst um að koma boltanum í holuna og ég hef gert það ágætlega. En mér finnst ég ekki hafa haft nógu góða stjórn á höggunum mínum til þessa," segir Woods.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×