Golf

Sex íslenskir kylfingar taka þátt í HM áhugamanna í Argentínu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslandsmeistarinn Tinna Jóhansdóttir er meðal keppenda á HM í Argentínu.
Íslandsmeistarinn Tinna Jóhansdóttir er meðal keppenda á HM í Argentínu. Mynd/Daníel

Ísland sendir bæði karla- og kvennalið á Heimsmeistarakeppni áhugamanna í golfi sem fer að þessu sinni fram í Argentínu. Heimsmeistarakeppnin var fyrst haldin árið 1958 og er haldið á tveggja ára fresti.

Lið karla og kvenna koma frá öllum heimshornum en keppt er um Eisenhower bikarinn í karlaflokki og Espirito Santo Trophy í kvennaflokki. Núverandi heimsmeistarar eru Skotland í karlaflokki og Svíþjóð í kvennaflokki

Konurnar hefja leik miðvikudaginn 20. október en leikið á völlum hjá Olivos Golf Club og Buenos Aires Golf Club. Þáttökuþjóðirnar eru 54 og eru þrír keppendur frá hverri þjóð. Fyrir hönd Íslands leika þær Tinna Jóhansdóttir GK, Signý Arnórsdóttir GK og Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK. Liðsstjóri er Steinunn Eggertsdóttir. Leikfyrirkomulagið er 72 holu högglekur þar sem tvö bestu skor hvers lið teljast hvern dag.

Karlarnir hefja leik fimmtudaginn 28. október en þeir einnig á völlum hjá Olivos Golf Club og Buenos Aires Golf Club. Þáttökuþjóðirnar eru 69 og eru þrír keppendur frá hverri þjóð. Fyrir hönd Íslands leika þeir Hlynur Geir Hjartarson GK, Ólafur Björn Loftsson NK og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, liðsstjóri er Ragnar Ólafsson. Leikfyrirkomulagið er eins og hjá konunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×