Viðskipti erlent

Danir vilja búta niður stærstu bankana, FIH í hópnum

Peter Schütze forstjóri Noreda Denmark segir að tillagan byggi á þeim misskilningi að stærð bankanna segi til um áhættuna af rekstri þeirra.
Peter Schütze forstjóri Noreda Denmark segir að tillagan byggi á þeim misskilningi að stærð bankanna segi til um áhættuna af rekstri þeirra.
Meirihluti mun vera fyrir því á danska þinginu að sex stærstu bankar landsins verði bútaðir niður í smærri einingar. FIH bankinn er í þessum hópi en hann er í eigu skilanefndar Kaupþings og Seðlabankinn á 500 miljóna evra veð í honum.

Fjallað er um málið í blaðinu Politiken. Þar segir að bankarnir sex séu, auk FIH, Danske Bank, Nordea Danmark, Jyske Bank, Sydbank og Nykredit Bank. Unnið er að frumvarpi um málið í þinginu.

„Bankarnir eru nú orðnir það stórir að ef einn þeirra fellur um slíkt hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar," segir Morten Bödskov talsmaður Jafnaðarmannaflokksins í fjármálum á danska þinginu. „Þess vegna er nauðsynlegt að skipta þeim up í smærri einingar."

Tveir aðrir flokkar á danska þinginu, Danski þjóðarflokkurinn og Sósíalíski þjóðarflokkurinn, styðja þessar hugmyndir Jafnaðarmanna. Stjórnarflokkarnir eru ekki jafnhrifnir af þessum hugmyndum og segir efnahags- og viðskiptaráðherra landsins, Brian Mikkelsen, að þessi tillaga sé dæmigerð fyrir efasemdir Jafnaðarmanna um stór fyrirtæki. Verði tillagan samþykkt mun það þýða dauða fyrir danska banka á alþjóðavettvangi.

Peter Schütze forstjóri Noreda Denmark segir að tillagan byggi á þeim misskilningi að stærð bankanna segi til um áhættuna af rekstri þeirra.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×