Viðskipti erlent

Danske Bank: Evran hefur orðið fyrir varanlegum skaða

"Þegar löndum á evrusvæðinu er heimilt að keyra áfram með svona miklum halla og safna upp mikilli skuldabyrði sýnir slíkt innbyggða veikleika í kerfinu. Traust á evrunni er það sem erfiðast verður að ná að nýju", segir John Hydeskov.

"Grundvöllurinn undir evrunni hefur hefur orðið fyrir varanlegum skaða," segir John Hydeskov gjaldmiðlasérfræðingur Danske Bank í samtali við börsen.dk og á þar við ástandið sem nú ríkir í löndunum í sunnanverðri Evrópu, einkum Grikklandi.

Ef evrusvæðið á að ná trúverðugleika sínum aftur þarf hið pólitísku kerfi að endurheimta traust og fjárhagsleg sjálfbærni að koma til í flestum evrulöndum, þar á meðal helstu löndum eins og Frakklandi og Þýskalandi.

"Þegar löndum á evrusvæðinu er heimilt að keyra áfram með svona miklum halla og safna upp mikilli skuldabyrði sýnir slíkt innbyggða veikleika í kerfinu. Traust á evrunni er það sem erfiðast verður að ná að nýju", segir John Hydeskov.

Danske Bank líkir núverandi kreppu við kreppuna í Asíu árið 1998, þar sem lönd með heilbrigðan efnahag soguðust inni í hringiðu þeirra landa sem áttu í erfiðleikum. Í Evrópu gæti þetta átt t.d. við Ítalíu.

Opinberar skuldir Ítalíu nema nú 114,6% af landsframleiðslu landsins og væntingar eru um að þær aukist upp í 117%. Gert er ráð fyrir að fjárlagahalli landsins í ár verði 5,3% af landsframleiðlsu sem er með því minna á evrusvæðinu.

"Lönd sem við töldum að væru í lagi eins og Ítalía, að vísu með miklar skuldir en ekki mikinn fjárlagahalla, eru skyndilega í miklum vandamálum. Vandmálum sem eru að verða hræðileg," segir John Hydeskov.

"Að nafnvirði er Ítalía með þriðju mestu skuldabyrði heimsins. Það væri slæmt ef Ítalía lenti skyndilega að geta ekki fjármagnað skuldir sínar vegna hækkandi vaxta á ríkisskuldabréfum."

Hydeskove segir einnig að stjórnmálamenn vanmeti oft hve fjármálamarkaðir bregðist hratt við aðstæðum. Slíkt hafi berlega komið í ljós við hrun Lehman Brothers.

"Það er fáránlegt að við stöndum núna aftur frammi fyrir kreppu sem líkist þeirri sem kom í kjölfar hruns Lehman Brothers vegna ríkisskuldabréfa í suðurhluta Evrópu," segir Hydeskov. "Það er líka afar óheppilegt að allir veikleikar evrunnar komi í ljós á sama augnablikinu."

Fleiri fréttir

Sjá meira

×