Viðskipti erlent

ESB íhugar að leyfa ríkisstyrki til flugfélaga

Framkvæmdastjórn ESB íhugar nú að líta framhjá regluverki sambandsins um ríkisaðstoð og leyfa ríkisstyrki til flugfélaga. Þetta yrði gert á svipaðan hátt og haustið 2001 þegar miklar truflanir urðu á flugsamgöngum í kjölfar hryðjuverkaárásarinnar 11. september það ár.

Fjallað er um málið í Financial Times. Þar segir að José Manuel Barroso forseti framkvæmdastjórnarinnar hafi skipað óformlega nefnd til að skoða málið. Í henni eiga sæti m.a. Siim Kallas samgöngustjóri, Joaquín Almunia, samkeppnisstjóri og Olli Rehn efnahags- og peningastefnustjóri framkvæmdastjórnarinnar.

Barroso segir að öskuskýið frá Eyjafjallajökli hafi skapað ófyrirsjáanlega stöðu í Evrópu og að myndun nefndarinnar sé viðurkenning á þeirri efnahagsógn sem stafar af öskunni.

Fram að síðustu helgi hafði framkvæmdastjórnin einbeitt sér að málefnum neytenda og rétti þeirra til bóta vegna afleiðinga hennar, það er að áætlunarflugi hefur verið aflýst í mörgum löndum.

Fram kemur í frétt Financial Times að fulltrúar nokkurra flugfélaga, þar á meðal Air France og KLM hafi hitt fulltrúa framkvæmdanefndarinnar um helgina og krafist aðgerða þar sem mörg flugfélög stefni í gjaldþrot ef gosinu í Eyjafjallajökli ljúki ekki á næstu dögum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×