Viðskipti erlent

Telja það versta yfirstaðið í gríska harmleiknum

Kálið er samt ekki sopið þó í ausuna sé komið hjá grískum stjórnvöldum. Þau hafa lofað miklum niðurskurði á fjárlögum sínum, niðurskurði sem verkalýðsfélög landsins segjast ætla að berjast gegn með ýmsum aðgerðum.

Sérfræðingar telja nú að það versta sé yfirstaðið í gríska harmleiknum sem heimurinn hefur fylgst með undanfarna daga og vikur. Erlendir fjölmiðlar segja að samningum grískra stjórnvalda við ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn muni ljúka á allra næstu dögum og að fjárhagsaðstoðin til Grikkja muni nema yfir 100 milljörðum evra eða yfir 17.000 milljörðum kr. á næstu þremur árum.

Nú síðdegis hafa þessar fréttir haft í för með sér að ávöxtunarkrafan á grískum ríkisskuldabréfum til 10 ára hefur lækkað niður í 8,9% en á tímabili fór hún upp í tæp 14%. Og krafan á bréfum til 2ja ára hefur lækkað niður í 12,8% en á tímabili fór hún í yfir 24%.

Samhliða þessu hefur skuldatryggingaálagið á ríkissjóð Grikklands lækkað töluvert og er komið niður í 680 punkta samkvæmt CMA gagnaveitunni. Um tíma fór álagið vel yfir 800 punkta og komst Grikkland í vikunni á toppinn yfir þau lönd sem talin eru í mestri hættu á þjóðargjaldþroti.

Kálið er samt ekki sopið þó í ausuna sé komið hjá grískum stjórnvöldum. Þau hafa lofað miklum niðurskurði á fjárlögum sínum, niðurskurði sem verkalýðsfélög landsins segjast ætla að berjast gegn með ýmsum aðgerðum.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×