Viðskipti erlent

Grískur auður flýr sökkvandi skip

málin rædd George Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, ræddi um stöðu efnahagsmála á fundi samtaka grískra fyrirtækja um miðjan síðasta mánuð. Markaðurinn/AP
málin rædd George Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, ræddi um stöðu efnahagsmála á fundi samtaka grískra fyrirtækja um miðjan síðasta mánuð. Markaðurinn/AP
Auðugir Grikkir og fyrirtæki þar í landi fluttu átta milljarða evra úr landi á fyrstu tveimur mánuðum ársins. Þetta jafngildir 1.380 milljörðum íslenskra króna.

Fjármagnsflóttinn fer í gegnum alþjóðlega banka á borð við HSBC og Société Générale og hefur féð að mestu verið flutt til Bretlands, Sviss og Kýpur. Breska dagblaðið Financial Times segir Sviss augljósan kost fyrir þá sem vilja koma sér undan hærri skatti á fjármagnstekjur sem vofir yfir þeim löndum Evrópusambandsins sem hafa orðið illa úti í kreppunni.

Blaðið hefur eftir sérfræðingi hjá greiningarfyrirtækinu CreditSights, að grískir bankamenn hafi áhyggjur af þróun mála enda geti þeir lent í fjármögnunarvanda og muni það hafa áhrif út í efnahagslífið, sem ekki er burðugt.- jab





Fleiri fréttir

Sjá meira


×