Viðskipti erlent

Árið í fyrra var hryllingur fyrir danskt atvinnulíf

Velta danskra fyrirtækja dróst saman um rúmlega 14% á síðasta ári sem samsvarar 482 milljörðum danskra kr. eða um 11.000 milljörðum kr. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Danmerkur.

Fjallað er um málið á börsen.dk og þar er sagt að árið í fyrra hafi verið hryllingur frá danskt atvinnulíf.

Byggingageirinn hefur orðið verst úti af öllum atvinnugreinum í Danmörku en veltan í honum dróst saman um 21,8%. Viðskiptaráð landsins (Dansk Erhverv) telur að botninum sé ekki náð enn í byggingargeiranum og að árið í ár verði áfram erfitt fyrir þá starfsemi.

Bo Sandberg skattasérfræðingur Dansk Erhverv segir að verslunargeirinn gæti braggast eitthvað á þessu ári í kjölfar þess að kaupmáttur launþega fer vaxandi að nýju. „Það sem af er árinu hefur þetta þó verið líkara tveimur fuglum í skógi en einum í hendi," segir Sandberg.

Tölurnar ber að skoða í því ljósi að veltan í dönsku atvinnulífi hefur stöðugt minnkað frá árinu 2005. Það ár jókst veltan um 10% en sú aukning hafði fallið niður í 4,8% árið 2008 að því er segir á börsen.dk.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×