Golf

Westwood kominn á topp heimslistans í golfi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Westwood með Tiger.
Westwood með Tiger.

Það urðu kaflaskil í golfheiminum í dag þegar Englendingurinn Lee westwood hrifsaði toppsæti heimslistans af Tiger Woods. Tiger hafði setið á toppi listans samfleytt í 281 viku.

"Þetta er mikill heiður og þessu fylgir líka ábyrgð. Ég get ekki neitað því að mér líður vel að sjá mig á toppnum," sagði Westwood.

Englendingurinn mun væntanlega ekki sitja jafn lengi í toppsætinu og Tiger og gæti hreinlega misst toppsætið í næstu viku.

Þá liggja fyrir úrslit í HSBC-meistaramótinu í Shanghai. Þar keppa Westwood, Tiger, Phil Mickelson og Martin Kaymer. Þeir eiga allir möguleika á því að taka toppsætið með góðum árangri í því móti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×