Viðskipti erlent

Evran áfram undir grískum áhrifum

Evran heldur áfram að gefa eftir og er það Grikklandskrísan eftir sem áður sem ræður mestu þar um. Evran kostar þegar þetta er ritað (11:00) 1.351 dal. Evran hefur nú lækkað um 1,9% á síðustu fjórum viðskiptadögum.

Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að Grikkland hafi verið allsráðandi í hreyfingum á evru/dollar gengiskrossinum undanfarna mánuði og útlit er fyrir að evran muni enn eiga undir högg að sækja á meðan málefni Grikkja eru óleyst.

Á fimmtudaginn næsta koma leiðtogar Evrópusambandsins saman á fundi þar sem málefni Grikklands verða rædd. Búist er við að Evrópuríkin undir forystu Angelu Merkel kanslara Þýskalands hafni því að veita Grikklandi beina aðstoð. Verði það niðurstaða fundarins er fastlega búist við því að Grikkland leiti á náðir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins en gríski forsætisráðherrann hefur sjálfur sagt að það sé næsti kostur.

Svo virðist vera að markaðsaðilum hugnist ekki að Grikkland leiti til AGS en evran hefur ítrekað veikst í kjölfar þess sem AGS kemur til tals. Ástæðan fyrir þessu er að það er afar neikvætt fyrir evruna ef í ljós kemur að ESB getur ekki fundið lausn á þessum vanda án utanaðkomandi aðstoðar. Sú niðurstaða veikir ESB og skilur eftir sig óvissu um hvernig á að taka á vandamálum sem þessum í framtíðinni.

Athyglisvert verður að fylgjast með þegar leiðtogar ESB koma saman seinna í vikunni og setjast á rökstólanna varðandi framtíð Grikklands en búast má við að evran haldi áfram að sveiflast í grískum takti þar til þá.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×