Golf

Bandaríkjamenn leiða í Ryder-bikarnum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tiger og Stricker stóðu sig vel.
Tiger og Stricker stóðu sig vel.

Það tókst að klára fyrstu umferðina í Ryder-bikarnum í morgun og eftir hana hafa Bandaríkjamenn nauma forystu. Þeir nældu í tvo og hálfan vinning á meðan Evrópa fékk einn og hálfan.

Evrópa fékk fyrsta vinninginn er Lee Westwood og Martin Kaymer kláruðu Phil Mickelson og Dustin Johnson 3&2.

Tiger Woods nældi í vinning fyrsta daginn er hann og Steve Stricker unnu Ross Fisher og Ian Poulter.

Önnur umferð er síðan þegar hafin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×