Golf

Íslensku golflandsliðin unnu bæði

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Tinna Jóhannsdóttir.
Tinna Jóhannsdóttir. Fréttablaðið/Pjetur

Golflandslið Íslands í karla og kvennaflokki fóru bæði með sigur af hólmi í viðareignum sínum í dag. Bæði lið keppa um þessar mundir á Evrópumóti landsliða, stelpurnar á Spáni en strákarnir í Póllandi.

Stelpurnar leika í C-riðli og Ísland vann Finnland í dag, 3-2, í hörku viðureign. Tinna Jóhannsdóttir, Signý Arnórsdóttir og Nína Björk Geirsdóttir unnu sína leiki í dag en aðrir leikir hjá íslensku stúlkunum töpuðust.

Íslenski stúlkurnar hafa nú lokið leik, Finnar og Ítalir eigast við á morgun og ræðst þá hvernig loka niðurstaðan í riðlinum verður.

Íslenska karlalandsliðið vann Pólland í leik í C-riðli þar sem Ísland vann alla sína leiki. Sigmundur Einar og Ólafur Björn léku saman í fjórmenningi þeir unnu 2/1. Alfreð Brynjar Kristinsson vann 3/1, Axel Bóasson vann 7/6 og þeir Kristján Þór Einarsson og Hlynur Geir Hjartarson unni sína leiki 3/2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×