Viðskipti erlent

John Kay um Icesave: „Við ættum að skammast okkar“

Hinn virti breski hagfræðingur John Kay, sem skrifar vikulega pistla í blaðið The Financial Times, tekur upp hanskann fyrir Íslendinga í Icesave-málinu í nýjasta pistli sínum sem birtist í dag. Í grein sinni sakar hann Breta og Hollendinga um að fara með fantaskap gegn lítilli þjóð sem fáránlegt sé að ætlast til af að standi skil á skuldum gráðugra bankamanna. Kay bendir á að tryggingakerfi Evrópska efnahagssvæðisins hafi algerlega brugðist og að við því verði að bregðast, en ekki með þessum hætti.

„Við réttlætum fautaskap okkar gegn Íslendingum á sama hátt og slíkir fautar hafa alltaf gert: Við gerum það vegna þess að við getum það," segir Kay og bætir við; „eða við gerum það vegna þess að við héldum að við gætum það," því að mati hans hafa Íslendingar nú yfirhöndina í deilunni.

„Ef þjóðaratkvæðagreiðslan sjötta mars verður haldin fær almenningur tækifæri til þess að hafna því að hann verði að standa skil á skuldbindinum banka og bankamanna." Kay segir að slík niðurstaða muni snúa málinu á hvolf og að það sé ástæðan fyrir því að Bretar og Hollendingar standi nú á ný í samningaviðræðum.

„Við ættum að skammast okkar," segir hann að lokum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×