Viðskipti erlent

Toyota innkallar rúmar 2 milljónir bíla

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Fjöldi Toyota bifreiða verða innkallaðar.
Fjöldi Toyota bifreiða verða innkallaðar.
Toyotaverksmiðjurnar tilkynntu í dag að þeir myndu innkalla 2,1 milljón bifreiða af Toyota og Lexusgerð vegna vandræða sem tengjast bensíninngjöfum. Verksmiðjurnar innkölluðu hundruðþúsunda bifreiða í fyrra af söum ástæu. Fram kemur á vef USA Today að svo virðist vera sem bensíninngjöf á bifreiðunum geti festst í gólfmottum bifreiðanna.

Bifreiðarnar sem um er að ræða eru einkum 2006 og 2007 árgerðir af Lexus GS 300 and GS 350. Einnig 2006 árgerðir af Lexus RX 330, RX 350 og RX 400h. Jafnframt 2006 árgerð af Toyota Highlander og Highlander HV, árgerðir 2003 til 2009 af 4Runners, 2009 til 2011 árgerðir af Lexus LXs  og árgerðir 2006 til 2010 af RAV4.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×