Handbolti

Ólafur og Sveinbjörn koma inn í landsliðið fyrir Þjóðverjaleikina

Ólafur Guðmundsson er aftur kominn inn i landsliðið.
Ólafur Guðmundsson er aftur kominn inn i landsliðið. Mynd/Stefán
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari hefur valið 18 manna hóp fyrir tvo landsleiki gegn Þjóðverjum í undankeppni EM 2012. Guðmundur kallar á tvo leikmenn sem voru ekki með á HM í Svíþjóð en það eru þeir Sveinbjörn Pétursson og Ólafur Guðmundsson. Sigurbergur Sveinsson dettur hinsvegar úr hópnum.

Fyrri leikurinn er gegn Þjóðverjum í Laugardalshöll miðvikudaginn 9.mars kl.19.45. Liðið heldur svo til Þýskalands og leikur þar gegn heimamönnum sunnudaginn 13.mars kl.14.00 að íslenskum tíma.

Forsala á leik Íslands og Þýskalands er í fullum gangi á www.midi.is.

Landsliðshópurinn á móti Þjóðverjum:

Markmenn:

Björgvin Páll Gústavsson, Kadetten

Hreiðar Leví Guðmundsson, Emsdetten

Sveinbjörn Pétursson, Akureyri

Aðrir leikmenn:

Alexander Petersson, Fücshe Berlin

Arnór Atlason, AG Köbenhavn

Aron Pálmarsson, Kiel

Ásgeir Örn Hallgrímsson, Hannover-Burgdorf

Guðjón Valur Sigursson, Rhein-Neckar Löwen

Ingimundur Ingimundarson, AaB

Kári Kristján Kristjánsson, Wetzlar

Oddur Gretarsson, Akureyri

Ólafur Guðmundsson, FH

Ólafur Stefánsson, Rhein-Neckar Löwen

Róbert Gunnarsson, Rhein-Neckar Löwen

Snorri Steinn Guðjónsson, AG Köbenhavn

Sverre Jakobsson, Groswallstadt

Þórir Ólafsson, Lübbecke

Vignir Svavarsson, Hannover-Burgdorf






Fleiri fréttir

Sjá meira


×