Viðskipti erlent

Segir rannsókn SFO ná til Banque Havilland

Daily Mail segir frá því á vefsíðu sinni að rannsókn efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar SFO á Kaupþingsmálinu nái einnig til Banque Havilland bankans sem reistur var á rústum Kaupþings í Lúxemborg.

Þetta hefur blaðið eftir heimildarmönnum en þeir segja að SFO vilji komast yfir trúnaðarskjöl, tölvupósta og upplýsingar í Banque Havilland sem gætu skýrt frekar viðskipti Tchenquiz bræðranna við Kaupþing.

Daily Mail getur þess að David Rowland sem stofnaði Banque Havilland hafi áður verið einn af fjármálastjórum Íhaldsflokksins og einn af stærri stuðningsmönnum hans hvað fé varðar. Rowland þurfti að láta af þessari stöðu sinni í fyrra í kjölfar spillingarmáls sem Daily Mail upplýsti.

Sonur Davids, Jonathan Rowland, gengir nú stöðu bankastjóra Banque Havilland. Hann segir að SFO hafi ekki haft samband né eigi hann von á að heyra frá lögreglunni. Ef svo hefði verið hefði SFO væntanlega komið í heimsókn í síðustu viku á sama tíma og Kaupþingsmenn og Tchenguiz bræðurnir voru handteknir. Þá segir Jonathan að lögregluyfirvöld í Lúxemborg hafi komið í bankann í fyrra að undirlagi sérstaks saksóknara á Íslandi. Þeir hafi ekkert heyrt frá þessum aðilum heldur síðan þá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×