Viðskipti erlent

Trúður selur húsið sitt

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Casper Christensen er skilinn við eiginkonu sína.
Casper Christensen er skilinn við eiginkonu sína.
Casper Christensen og fyrrverandi eiginkona hans Iben Hjejle eru búin að selja glæsihúsið sitt á Norðursjálandi, en þau skildu á dögunum. Fasteignasalan Mette Lykken bolig, sem sá um söluna á húsinu staðfestir þetta við fasteignavefinn Boliga.dk. Ekkert fæst þó gefið upp um kaupverðið, en sjálf keyptu þau húsið fyrir upphæð sem nemur um 110 milljónum íslenskra króna. Það var fyrir þremur árum. Casper og Ibensen hafa verið eitt umtalaðasta parið í Danmörku að undanförnu. Þau leika hjón í Klovn þáttunum vinsælu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×