Viðskipti erlent

Auglýsingar munu birtast í fréttaveitu Facebook

Þessi nýjung virkar þannig að fyrirtæki greiða Facebook fyrir að breyta uppfærslum og öðru efni sem notendur hafa "líkað" í auglýsingar.
Þessi nýjung virkar þannig að fyrirtæki greiða Facebook fyrir að breyta uppfærslum og öðru efni sem notendur hafa "líkað" í auglýsingar. mynd/AP
Notendur samskiptasíðunnar Facebook munu brátt sjá auglýsingar í fréttaveitu (e. News feed) síðunnar. Talsmaður Facebook segir að auglýsingarnar munu birtast í janúar á næsta ári.

Í tilkynningu frá Facebook kemur fram að stjórnendur síðunnar muni fylgjast náið með auglýsingunum og tryggja að ekki sé brotið á rétti notenda. En ekki eru allir á eitt sáttir með þessa nýjung og segja hana brjóta á friðhelgi notenda. Að auki verða auglýsingarnar í svipuðu formi og venjulegar uppfærslur svo að erfitt verður að greina á milli kostaðs efnis og annars efnis.

Ekki verður hægt að koma í veg fyrir birtingu auglýsinganna (e. sponsored stories) en notendur munu þó geta eitt stökum skilaboðum út af fréttaveitu sinni.

Facebook ræður því hvaða auglýsingar birtast í fréttaveitunni enda fylgist samskiptasíðan náið með notkun hvers notenda fyrir sig. Þannig verður hægt að áætla hvaða auglýsing höfðar til tiltekins einstaklings.

Þessi nýjung virkar þannig að fyrirtæki greiða Facebook fyrir að breyta uppfærslum og öðru efni sem notendur hafa "líkað" í auglýsingar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×