Viðskipti erlent

Apple nær nýjum hæðum

Verð á hlutabréfum Apple náði 600 dollara takmarkinu stuttu eftir að hlutbréfamarkaðir opnuðu í dag.
Verð á hlutabréfum Apple náði 600 dollara takmarkinu stuttu eftir að hlutbréfamarkaðir opnuðu í dag. mynd/AFP
Velgengni tæknifyrirtækisins Apple náði nýjum hæðum í dag. Verð á hlutabréfum fyrirtækisins náði 600 dollara takmarkinu stuttu eftir að hlutbréfamarkaðir opnuðu í dag.

Apple er verðmætasta fyrirtæki veraldar. Í febrúar á þessu ári skaust markaðsvirði fyrirtækisins yfir 500 milljarða dollara og stendur nú í um 550 milljörðum. Örfá fyrirtæki hafa náð þessu takmarki, þar á meðal eru Microsoft og Exxon Mobile.

Mikil spenna er fyrir nýjustu vöru fyrirtækisins, þriðju kynslóð iPad spjaldtölvunnar vinsælu. Sérfræðingar segja að Apple gæti selt milljón eintök af spjaldtölvunni þegar hún fer í almenna sölu á morgun. Apple hefur lokað fyrir forpantanir á iPad og var viðskiptavinum tjáð að þeir gætu þurft að bíða í tvo daga og allt upp í þrjár vikur eftir að fá tækniundrið afhent.

Apple seldi 15.4 milljón eintök af iPad 2 spjaldtölvunni á síðasta ársfjórðungi. Það magn er tvöfalt meira en á sama ársfjórðungi árið 2010.

Spjaldtölvan nýja er einungis kölluð iPad. Uppfærslurnar eru af ýmsum toga og státar tölvan meðal annars af háskerpu skjá, mun öflugri myndavél og uppfærðum örgjörva.

Hinn nýji iPad kostar jafn mikið og fyrri kynslóðir spjaldtölvunnar eða 499 dollara.

Eins og áður segir fer nýja spjaldtölvan í almenna sölu á morgun í Bandaríkjunum, Kanada og tíu öðrum löndum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×