Viðskipti erlent

Obama mættur á Pinterest

Á vegg Obama má sjá fjölskyldu hans, listaverk og uppskriftir.
Á vegg Obama má sjá fjölskyldu hans, listaverk og uppskriftir. mynd/Pinterest
Samskiptasíðan Pinterest hefur vakið mikla athygli undanfarið og hefur Bandaríkjaforseti nú skráð sig á síðuna.

Pinterest opnaði fyrir tveimur árum en er fyrst núna farin að vekja athygli. Milljónir manna hafa skráð sig á síðuna á síðustu vikum og mánuðum.

Tilgangur síðunnar er afar einfaldur. Notendur festa ljósmyndir af veraldarvefnum og fjölskyldualbúmum á stafrænan sýndarvegg og deila þannig áhugamálum sínum og ástríðum með umheiminum.

Um leið og ljósmynd hefur verið fest geta notendur deilt myndinni líkt og á samskiptasíðunni Twitter.

Á vegg Obama má sjá fjölskyldu hans, listaverk og uppskriftir. Um 4.000 manns fylgja Obama á Pinterest.

Það er kosningateymi Obama sem sér um síðuna en hann sækist nú eftir endurkjöri í Bandaríkjunum.

Hægt er að nálgast heimasíðu Pinterest hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×