Viðskipti erlent

Allir Evrópumarkaðir opnuðu í rauðum tölum

Hlutabréfamarkaðir í Evrópu opnuðu allir í rauðum tölum í morgun og fylgdu þar með í fótspor markaða í Asíu í nótt.

FTSE vísitalan í London hefur lækkað um tæp 2%, Dax vísitalan í Frankfurt um 1,5% og Cac 40 vísitalan í París hefur lækkað um rúmt prósent.

Ástæðan fyrir þessum lækkunum eru úrslit kosninganna í Frakklandi og Grikklandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×