Viðskipti erlent

Fitch setur Kýpur í ruslflokk

Matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur lækkað lánshæfiseinkunn Kýpur niður í svokallaðan ruslflokk eða úr BBB- og niður í BB+. Þar að auki er einkunnin með neikvæðum horfum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fitch. Kýpur á við gífurlega efnahagserfiðleika að stríða og þá einkum bankakerfi landsins. Þar að baki liggur náið samband eyjarinnar við Grikkland og hefur skuldakreppan í Grikklandi smitað út frá sér til Kýpur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×