Viðskipti erlent

David Cameron segir framferði Barclays manna hneyksli

Magnús Halldórsson skrifar
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands.
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands.
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, segir framferði starfsmanna Barclays-bankans, og eftir atvikum annarra bankamanna, er varðar vaxtasvindl bankans vera hneyksli og tilkynnti um það í breska þinginu í dag að ítarleg rannsókn myndi fara fram á starfsháttum banka í landinu.

Barclays bankinn samþykkti að greiða 290 milljónir punda í sekt til breska fjármálaeftirlitsins (FSA), jafnvirði tæplega 60 milljarða króna, vegna markaðsmisnotkunar bankans á millibankamarkaði með vexti. Stjórnarformaður Barclays undafarin sex ár, Marcus Agius, sagði upp stöfum vegna málsins í morgun en hann hafði áður neitað að taka við bónusgreiðslu líkt og forstjóri bankans, Bob Diamond. „Framkoma bankamanna í þessu máli er fullkomlega með ólíkindum, og algjörlega óásættanleg," sagði Cameron m.a. í ræðu sinni í þinginu. „Bankamenn sem brutu lög, ættu að fá refsingu," sagði Cameron.

Brot bankans snéru að því að lánatökukostnaður, þ.e. álag á lán frá öðrum bönkum, var minni en hann átti að vera, og var staða bankans þannig fegruð. FSA segir brotin vera þau alvarlegustu sem eftirlitið hafi sektað fyrir í sögu eftirlitsins.

Rannsókn á bankageiranum breska verður beint heildrænt gegn geiranum í heild, en ekki aðeins að brotum Barclays. Sérstök rannsókn mun fara fram um millibankavaxtamálið, og hefur SFO þegar hafið þá rannsókn.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×