Viðskipti erlent

Ótrúlegar sölutölur Apple - 10 þúsund ipad tölvur selst hér á landi

Magnús Halldórsson skrifar
Á þriðja ársfjórðungi rekstrarárs Apple á þessu ári, samkvæmt afkomutilkynningu, seldust 17 milljónir i pad tölva um heim allan, eða sem nemur tæplega 200 þúsund tölvum á hverjum degi.
Á þriðja ársfjórðungi rekstrarárs Apple á þessu ári, samkvæmt afkomutilkynningu, seldust 17 milljónir i pad tölva um heim allan, eða sem nemur tæplega 200 þúsund tölvum á hverjum degi.
Mikil sala hefur verið á vörum Apple hér á landi það sem af er ári líkt og víðast hvar annars staðar erlendis. Umboðsaðili Apple á Ísland reiknar með því að selja fimmtán þúsund i pad spjaldtölvur á þessu ári.

Það er ekki ofsögum sagt að hugbúnaðar- og fjarskiptarisinn Apple hafi sigrað heiminn á undanförnum árum með nýjum vörum sínum. Snjallsími fyrirtækisins, iphone, hefur selst í yfir 200 milljónum eintaka um allan heim, og i pad spjaldtölvur litlu minna, og söluaukningin er mikil milli ára.

Bjarni Ákason, framkvæmastjóri Epli.is, sem er umboðsaðili fyrir Apple hér á landi, segir að vöxturinn hafi verið ótrúlega mikill.

„Við höfum verið í nokkurn veginn sama takti og Apple þegar kemur að árlegum vexti í sölu hér á landi. Í fyrra jókst sala um 80 prósent, en á þessu ári hefur aukningin verið um 30 prósent," segir Bjarni.

Salan á i pad spjaldtölvum hefur aukist mikið hér á landi á þessu ári, líkt og á mörkuðum erlendis.

„Við höfum selt um 10 þúsund i pad tölvur á þessu ári, og ég geri ráð fyrir að um 15 þúsund tölvur verði seldar þegar árið er á enda," segir Bjarni.

Til viðbótar þessu koma síðan i pad spjaldtölvur sem Íslendingar hafa keypt erlendis, en þær skipta að öllum líkindum þúsundum.

Nýr sími frá Apple, i phone 5, seldist í ríflega fjórum milljónum eintaka í Bandaríkjunum á fyrstu söludögum símans þar í landi. Búist er við því að síminn slái öll fyrri sölumet.

Rekstrartölur Apple fyrirtækisins fyrir þriðja ársfjórðung þessa árs sýna vel hversu mikil velgengni einkennir vörur fyrirtækisins þessa dagana. Á þriðja ársfjórðungi seldi fyrirtækið 26 milljónir iphone síma, sem jafngildir tæplega 300 þúsund símum á hverjum degi ársfjórðungsins. Heildartekjur námu 35 milljörðum dala á fyrrnefndu tímabili, sem jafngildir ríflega 4.400 milljörðum króna, eða sem nemur, tæplega þrefaldri árlegri landsframleiðslu Íslands. Hagnaður á fjórðunginum nam 8,8 milljörðum dala, eða sem nemur ríflega þúsund milljörðum króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×