Golf

Rory McIlroy PGA kylfingur ársins í fyrsta sinn á ferlinum

Caroline Wozniacki og Rory McIlroy.
Caroline Wozniacki og Rory McIlroy. Nordic Photos / Getty Images
Rory McIlroy var í gær útnefndur kylfingur ársins á bandarísku PGA mótaröðinni í golfi. Þetta er í fyrsta sinn sem Norður-Írinn fær þessa viðurkenningu. Hann þakkaði unnustu sinni, tenniskonunni Caroline Wozniacki, m.a. fyrir þann árangur sem hann hefur náð á keppnistímabilinu. Wozniacki, sem er frá Danmörku, er í fremstu röð á heimsvísu í sinni íþrótt.

„Ég hef séð hve hart hún leggur að sér við æfingar og hún hefur gríðarlegan metnað. Ég hef lært ýmislegt af henni," sagði hinn 23 ára gamli McIlroy en hann er í efsta sætu heimslistans í golfi.

„Hún hefur haft góð áhrif á feril minn, ég hef alltaf haft það á tilfinningunni að ég hafi æft vel, og lagt hart að mér. Á undanförnum 18 mánuðum, og sérstaklega eftir sigurinn á opna bandaríska meistaramótinu, hefur mér tekist að taka eitt skref upp á við á ferlinum. Ég hef lært að verða betri atvinnumaður – en ég held ég hafi ekki breyst sem manneskja. Það eina sem ég hugsa um er að ná árangri og vinna eins mörg golfmót og hægt er," sagði McIlroy en hann á langt í land með að jafna árangur Tiger Woods á þessu sviði. Woods hefur tíu sinnum verið valinn kylfingur ársins á PGA mótaröðinni.

Þeir sem oftast hafa verið valdir sem kylfingar ársins á PGA mótaröðinni eru:

10: Tiger Woods

6: Tom Watson

5: Jack Nicklaus

4: Ben Hogan

2: Julius Boros, Billy Casper, Arnold Palmer, Nick Price




Fleiri fréttir

Sjá meira


×