Golf

Paul Lawrie fataðist flugið | Kaymer í forystu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nordicphotos/Getty
Þjóðverjinn Martin Kaymer hefur eins höggs forystu að loknum þremur hringjum á Nedbank Challenge mótinu sem fram fer í Sun City í Suður-Afríku.

Kaymer spilaði hringinn í dag á 70 höggum og er á fimm undir pari vallarins samanlagt. Hann hefur eins höggs forystu á heimamennina Charl Schwartzel, á fjórum undir pari, og Louis Oosthizen á þremur undir pari.

Paul Lawrie hafði forystu að loknum tveimur hringjum á fjórum höggum undir pari. Skotinn spilaði illa í dag og er í 6. sæti á einu undir pari.

Stöðuna í mótinu má sjá hér.

Englendingurinn Lee Westwood er á tveimur höggum undir pari og allt galopið fyrir lokahringinn sem leikinn verður á morgun. Bein útsending á Stöð 2 Sport hefst klukkan 9 í fyrramálið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×