Golf

Rory McIlroy kylfingur ársins hjá golfíþróttafréttamönnum

Rory McIlroy.
Rory McIlroy. Nordic Photos / Getty Images
Rory McIlroy heldur áfram að safna viðurkenningum á þessu tímabili en Norður-Írinn var valinn kylfingur ársins af golfíþróttafréttamönnum. McIlroy er efstur á heimslistanum og hann átti frábært tímabil þar sem hann vann m.a. PGA meistaramótið og lokamót Evrópumótaraðarinnar sem fram fór í Dubai.

Hinn 23 ára gamli kylfingur var jafnframt efstur á peningalista PGA mótaraðarinnar í Bandaríkjum og efstur á peningalista Evrópumótaraðarinnar.

McIlroy fékk um 50% atkvæða í fyrsta sæti í kjöri golfíþróttafréttamanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×