Golf

Tinna komst ekki áfram á lokaúrtökumótið

Tinna Jóhannsdóttir.
Tinna Jóhannsdóttir. GVA
Tinna Jóhannsdóttir, atvinnukylfingur úr GK, komst ekki í gegnum fyrsta stigið á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina. Tinna var aðeins tveimur höggum frá því að komast á lokaúrtökumótið en hún lék hringina fjóra á keppnisvellinum í Marokkó á samtals átta höggum yfir pari vallar. Og endaði hún í 49. sæti af alls 75 keppendum. Alls komust 45 kylfingar áfram á lokaúrtökumótið af þessum velli.

Tinna lék hringina fjóra á 74-72-74 og 76 höggum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×