Golf

Poulter í leit að lokapúslinu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ian Poulter fagnaði sigrinum í Ryder-bikarnum vel.
Ian Poulter fagnaði sigrinum í Ryder-bikarnum vel. Nordicphotos/Getty
Kylfingurinn Ian Poulter vonast til þess að geta fylgt eftir góðri frammistöðu á golfvellinum á nýliðnu ári með eina bikarnum sem vantar í safnið. Englendingurinn hefur aldrei unnið sigur á risamóti í íþróttinni.

Poulter keppir í vikunni á fyrsta PGA-móti ársins á Hawaii. Hann viðurkennir í samtali við Reuters-fréttastofuna að hann eigi enn eftir að finna út hvað hann þurfi að gera til þess að vinna sigur á risamóti.

„Ég veit ekki hvað þarf til," sagði Englendingurinn. „Ef það þýðir að ég þurfi að taka mér tuttugu vikna frí fyrir risamót þá geri ég það. Ef það þýðir að ég þurfi að spila á fimm mótum í röð til þess að vinna eitt þeirra geri ég það."

Eftir rólega byrjun á golfvellinum á síðasta ári fór allt á flug hjá Poulter. Hann hafnaði í efstu tiu sætunum á þremur af risamótunum fjórum og vann sigur á HSBC Champions mótinu í Kína á Heimsmótaröðinni.

Hápunktur ársins var þó frammistaða Poulter í Ryder-bikarnum. Þar fór Poulter fyrir ótrúlegri endurkomu Evrópuliðsins sem vann ótrúlegan sigur.

„Ég fæ ennþá gæsahúð þegar ég tala um það," segir Poulter um frammistöðu sína á öðrum degi keppninnar. Poulter landaði þá fimm fuglum í röð, vann sigur í viðureign sinni og gaf tóninn fyrir það sem á eftir kom.

„Ég hef mörg markmið. Halda áfram að bæta sömu hlutina í leik mínum, bæta mig og vonandi bæta titlum í safnið ásamt þeim fyrsta á risamóti," sagði Poulter um markmið sín á árinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×