Golf

McGinley útnefndur fyrirliði Ryder-liðs Evrópu

Paul McGinley.
Paul McGinley.
Evrópumenn eru búnir að finna næsta fyrirliða Ryder-liðsins í golfi. Það var Írinn Paul McGinley sem hreppti hnossið og hann því stýra evrópska liðinu í Ryder-keppninni á næsta ári.

Hinn 46 ára gamli McGinley er fyrsti Írinn sem fær þessa stöðu og hann tekur við henni af Spánverjanum Jose Maria Olazabal.

Fyrirliði bandaríska liðsins á Ryder 2014 verður hinn 65 ára gamli heiðursmaður Tom Watson.

McGinley hefur spilað í þremur Ryder-keppnum og var svo aðstoðarmaður síðustu tveggja fyrirliða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×