Golf

Tiger og Elin saman á ný

Tiger og Elin ásamt dóttur þeirra, Sam.
Tiger og Elin ásamt dóttur þeirra, Sam.
Skilnaður Tiger Woods og Elin Nordegren var ansi hávaðamikill og lítið hefur heyrst af samskiptum þeirra síðan Elin lét sig hverfa með hvelli árið 2009.

Þau hafa ekki sést saman opinberlega síðan þá. Breyting varð á því um helgina er myndir náðust af þeim saman með börnin sín.

Þau voru á íþróttamóti unglinga með krakkana. Þau komu í sitt hvoru lagi en fóru saman er fólk fór að sýna þeim mikinn áhuga.

Það er ekki talið að þau séu að slá sér aftur saman upp heldur eingöngu að hlúa að börnunum tveimur sem þau eiga saman.

Hægt er að sjá myndir af þeim með krakkana hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×