Golf

Þrumuveður stoppaði Tiger Woods

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tiger Woods.
Tiger Woods. Mynd/AP
Tiger Woods er í góðum málum á Arnold Palmer golfmótinu í Flórída en það tókst þó ekki að klára leik í gær vegna þrumuveðurs sem gekk þá yfir á Bay Hill vellinum í Orlando.

Mikil rigning og rok varð til þess að allir kylfingarnir voru kallaðir inn og keppni var frestað þar til í dag. Starfsmenn vallarins þurfa nú að vinna baki brotnu við að laga völlinn áður en hann er leikfær á ný.

Það síðasta sem Tiger Woods gerði áður en keppni var hætt var að setja niður rúmlega þriggja metra pútt á annarri holu og ná þriggja högga forskoti.

Keppni mun væntanlega vera framhaldið í dag. Tiger Woods getur þá bæði tryggt sér sigur á mótinu sem og efsta sætið á heimslistanum en hann mun taka það af Norður-Íranum Rory McIlroy takist honum að vinna.

Tiger Woods hefur ekki verið á toppi heimslistans í 29 mánuði eftir að hafa verið þar á undan í 623 vikur í efsta sætinu.

Vinni Woods verður það hans 77. sigur á PGA-mótaröðinni og vantar þá bara fimm sigra til að jafna met Sam Snead. Woods hefur unnið sjö sinnum áður á Bay Hill vellinum í Orlando.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×