Golf

Tiger fjórum höggum á eftir Rose

Rose og Tiger labba saman í gær.
Rose og Tiger labba saman í gær.
Tiger Woods fór nokkuð vel af stað á Arnold Palmer Invitational-mótinu. Hann kom í hús á 69 höggum, eða þrem höggum undir pari, en það setur hann meðal efstu manna.

Woods hefur unnið þetta mót alls sjö sinnum sem er einstakur árangur. Hann fékk örn, fjóra fugla og þrjá skolla á hringnum.

"Þetta var allt í lagi hjá mér í dag. Ég var alls ekki upp á mitt besta samt. Ég get betur og vonandi verða næstu hringir betri," sagði Tiger.

Englendingurinn Justin Rose leiðir eftir fyrsta hring en hann kom í hús á 65 höggum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×