Golf

Golfsumarsins beðið

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Páll Ríkharðsson mokaði snjó úr lautinni á Kötluvelli á þriðjudaginn.
Páll Ríkharðsson mokaði snjó úr lautinni á Kötluvelli á þriðjudaginn. Mynd/ghgolf.is
Kylfingar á höfuðborgarsvæðinu eru farnir að munda kylfurnar og vel það því margir af stærstu golfvöllum svæðisins verða opnaðir í dag eða um helgina.

Fyrir sunnan hafa vallarstarfsmenn áhyggjur af því að grasið sé ekki tekið að grænka og að ástand vallanna sé verra en oft áður. Fyrir norðan er staðan hins vegar sú að sums staðar sést ekki einu sinni í gras.





Kötluvöllur er á kafi í snjó.Mynd/ghgolf.is
Á Kötluvelli á Húsavík er ástandið til dæmis svart, eða öllu heldur hvítt. Á myndum sem teknar voru á vellinum í vikunni sést að kylfingar þurfa að bíða í nokkurn tíma enn áður en hægt verður að slá bolta á brautum vallarins.

Framkvæmdir á 10. braut.Mynd/gagolf.is
Akureyringar bíða spenntir eftir því að framkvæmdum á brautum Jaðarsvallar ljúki. Alla teiga vallarins á að stækka og þekja með hefðbundnu grasi og gervigrasi að hluta. Þá verður sex ára framkvæmdartíma á Jaðarsvelli lokið.

Hreinsunardagur fer fram hjá Golfklúbbi Reykjavíkur og Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar í dag. Vellirnir verða svo formlega opnaðir á laugardaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×