Golf

Óvíst hvenær hefja má leik á Leirdalsvelli

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
"Þessi mynd er frá 7 maí 2012, þá var búið að vera opið í 10 daga og allt í blóma," skrifar Guðmundur Árni við þessa mynd á Facebook.
"Þessi mynd er frá 7 maí 2012, þá var búið að vera opið í 10 daga og allt í blóma," skrifar Guðmundur Árni við þessa mynd á Facebook. Mynd/Heimasíða GKG
Guðmundur Árni Gunnarsson, vallarstjóri á Leirdalsvelli, segir að veður þurfi að batna til muna eigi kylfingar að geta hafið leik á vellinum þann 9. maí eins og vonir standa til.

Kalt veðurfar hefur gert golfvallarstarfsmönnum erfitt fyir undanfarnar vikur og grasið á golfvöllum landsins fengið að kenna á kuldanum.

„Veðrið er búið að leika okkur grátt í apríl og var til að mynda -4 gráður um klukkan 6 í morgun," skrifar Guðmundur Árni á Facebook síðu Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar í dag. Hann segir sem betur fer betra veður vera í kortunum. Vonandi hafi það góð áhrif á grasvöxtinn.

„Öll vinna sem fer fram á vellinum þessa dagana miðast við að opna völlinn fimmtudaginn 9. maí en til að það gangi eftir þarf veðrið að skána til mikilla muna."

Sportið á Vísi er komið á Facebook. Fylgstu með.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×