Golf

Garcia ósáttur við Tiger Woods

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sergio Garcia og Tiger í gær.
Sergio Garcia og Tiger í gær. Nordicphotos/Getty
Sergio Garcia kenndi öskrum áhorfenda um misheppnað högg sem varð til þess að forysta hans á Players-mótinu fór fyrir bý. Garcia og Tiger Woods spiluðu saman þriðja hringinn á mótinu í gær.

Garcia horfði reiður í áttina að Tiger Woods þegar annað högg hans á síðari af tveimur par fimm holum vallarins hafnaði utan brautar. Áhorfendur í Flórída ærðust þegar Tiger tók upp trékylfu þar sem hann bjó sig undir erfitt skot inni á milli trjánna.

„Tiger var augljóslega mér á vinstri hönd og ég átti næsta högg," sagði Spánverjinn pirraður í viðtali við NBC sjónvarpsstöðina. Keppni varð að fresta á mótinu í gær vegna veðurs en var framhaldið klukkan ellefu í morgun.

„Áhorfendurnir eltu hann og ég beið eftir því að þeir kæmu sér fyrir. Kannski sá hann ekki að ég var að búa mig undir högg en maður þarf að fylgjast með því þegar kollegi manns er í miðri aftursveiflu," sagði Garcia svekktur.

„Hann hefur líklega teygt sig eftir trékylfu númer þrjú eða fimm og þá byrjuðu allir augljóslega að öskra," sagði Garcia. Honum fannst að Tiger hefði vel getað beðið með að ná í kylfuna þar til Garcia var búinn með höggið.

Svíinn David Lingmerth kom öllum á óvart með erni og fugli á síðustu þremur holunum og hafði tveggja högga forskot þegar leik var frestað í gær. Garcia og Tiger náðu Svíanum í morgun og deila þeir þrír forystunni.

Staðan á mótinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×