Golf

Axel byrjar vel á Garðavelli

Axel Bóasson úr Keili.
Axel Bóasson úr Keili. Mynd/GSÍmyndir.net

Axel Bóasson úr Keili er efstur á Egils Gull golfmótinu á Garðavelli og lék hann fyrsta hringinn í mótinu á 70 höggum eða tveimur höggum undir pari. Þetta er fyrsta stigamótið á Eimskipsmótaröðinni.

Axel er efstur en næstur af þeim sem hafa lokið leik er Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur á 72 höggum.

 

Í kvennaflokki er Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili á besta skorinu enn sem komið er. Guðrún er einu höggi undir pari eftir 9 holur. En konurnar hófu leik um hádegisbil og ljúka ekki leik fyrr en í kvöld.

Það er hægt að fylgjast með gangi mála á mótinu með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×