Golf

Birgir Leifur nálægt sæti í móti á Evrópumótaröðinni

Birgir Leifur Hafþórsson lék í úrtökumóti í dag.
Birgir Leifur Hafþórsson lék í úrtökumóti í dag. Getty Images

Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, tók þátt í úrtökumóti fyrir Nordea Masters mótið sem fram fer á Evrópumótaröðinni um næstu mánaðamót. Um 100 kylfingar kepptu um þrjú laus sæti í mótinu sem er stærsta golfmót sem haldið er á Norðurlöndum á ári hverju.

Birgir Leifur lék á 68 höggum í dag eða fjórum höggum undir pari. Tveir kylfingar léku á 67 höggum og náðu tveimur öruggum sætum en Birgir Leifur fór í bráðabana við fimm aðra kylfinga um eitt laust sæti. Svo fór að Niklas Lemke náði síðasta sætinu eftir bráðabana.

Birgir Leifur er eini íslenski kylfingurinn sem hefur unnið sér inn keppnisrétt á Evrópumótaröð karla. Það gerði hann árið 2007 og lék árið á eftir á mótaröðinni áður en hann missti keppnisrétt sinn. Hann mun á morgun hefja keppni í móti á Nordea Golf League mótaröðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×